Fara í vöruupplýsingar
Runway Acyive Yoga handklæði
3,690 kr
Runway Active Yoga handklæðið er hannað til að liggja stöðugt yfir æfingadýnunni á meðan á æfingu stendur. Hankar á bakhliðinni krækjast yfir horn dýnunnar og hjálpa til við að halda handklæðinu á sínum stað. Mjúkt og rakadrægt efni veitir aukin þægindi við yoga, pilates og aðrar æfingar. Einnig tilvalið að taka með á sólarströndina þar sem hægt er að festa það við sólbekkinn. Fyrirferðalítið í töskuna.
Eiginleikar:
- Hankar á hornum sem halda handklæðinu á sínum stað
- Mjúkt og rakadrægt efni
- Þægilegt yfir æfingadýnu og einnig sólbekkinn
- Hentar fyrir yoga, pilates og aðrar æfingar
- Stærð: 61 × 183 cm