Þjónustuskilmálar

Söluskilmálar Runway Active

Þessir skilmálar gilda um kaup á vörum í netverslun Runway Active.

Verð og greiðsla

Öll verð eru birt í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt þar sem við á.

Greiðsla fer fram með þeim greiðslumöguleikum sem í boði eru í netversluninni hverju sinni.

Pantanir

Pöntun telst staðfest þegar greiðsla hefur verið samþykkt og staðfesting hefur verið send til viðskiptavinar.

Runway Active áskilur sér rétt til að leiðrétta augljósar villur í verði, vörulýsingum eða öðrum upplýsingum á vefsíðunni.

Ef vara reynist uppseld eftir að pöntun hefur verið gerð verður haft samband við viðskiptavin og greiðsla endurgreidd eftir því sem við á.

Afhending

Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og auðið er. Upplýsingar um afhendingu og sendingarkostnað koma fram við greiðslu og í sendingarskilmálum Runway Active.

Skil og endurgreiðslur

Um skil, vöruskipti og endurgreiðslur gilda skila- og endurgreiðsluskilmálar Runway Active og gildandi lög um neytendakaup og neytendasamninga.

Ábyrgð og gallar

Ef vara er gölluð eða röng skal hafa samband við Runway Active eins fljótt og auðið er. Um réttindi vegna galla gilda íslensk lög.

Gildandi lög

Um viðskipti við Runway Active gilda íslensk lög.